11 1. verðlauna hestar keppa í fimmgangi í kvöld
Mikil eftirvænting er meðal hestamanna fyrir fimmgangskeppni KS deildarinnar sem fer fram í Svaðastaðahöllinni í kvöld miðvikudagskvöldið 2.mars kl 20.00. Fjöldi góðra hrossa er skráð til leiks og ef litið er yfir ráslistan sést að sjö fyrstu hross í braut eru allt 1.v kynbótahross.
Alls eru 11 1.v kynbótahross skráð til leiks og verður fróðlegt að sjá hvernig þau spjara sig í sportinu.
Einnig mæta þekktir keppnishestar í brautina.
Það er því ljóst að það verður líf og fjör í Svaðastaðahöllinni í kvöld.