12 – 13 störf gætu glatast hjá HS

Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki þarf verulega að draga saman seglin samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar 2012 en henni er gert að skera niður rekstrarútgjöld um 8,5% eða alls um 62 milljónir. Hafsteinn Sæmundsson forstjóri HS segir hættu á að sjúkrahúsrekstur verði fyrir bí á Sauðárkróki.

 

Hafsteinn segir þumalputtaregluna vera þá að fyrir hverjar 10 milljónir sem skornar eru niður tapist tvö störf sem þýðir að í þessum aðgerðum gætu tapast 12 – 13 störf við stofnunina. Frá árinu 2008 hefur HS verið gert að skera niður 26-27%  og að viðbættum nýjustu tölum er hún komin upp í 35%. Ljóst er að það kemur hart niður á þjónustu við íbúa héraðsins en Hafsteinn telur hættu á því að sjúkrahúsrekstur verði fyrir bí hjá stofnuninni.

–Við eigum eftir að skoða það endanlega hvernig við bregðumst við þessum tíðindum en við munum berjast fyrir því að þetta verði leiðrétt á einhvern hátt, segir Hafsteinn. Starfsmannafundur verður haldinn hjá stofnuninni nk. miðvikudag og verða málin þá skoðuð nánar með starfsmönnum.

Fleiri fréttir