130 ár frá vígslu Sauðárkrókskirkju

Séra Sigríður Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari í hátíðarmessu í tilefni 130 ára afmælis Sauðárkrókskirkju. Myndir: Hörður Ingimarsson.
Séra Sigríður Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari í hátíðarmessu í tilefni 130 ára afmælis Sauðárkrókskirkju. Myndir: Hörður Ingimarsson.

Það er sunnudagur 27. nóvember 2022, fyrsti sunnudagur í jólaföstu, er gengið er til Sauðárkrókskirkju í norðan nepju, fimm gráðu hita og rigningu. Það er hátíðisdagur að minnast 130 ára vígslu kirkjunnar 18. desember1892. Þann dag var stórhríð og einn helsti frumkvöðull kirkjubyggingarinnar, Lúðvík Popp kaupmaður, komst ekki til kirkjunnar vegna veðurs þó búið væri að sérsmíða burðargrind fyrir hann, en hann átti skammt ólifað og var með þeim fyrstu sem hlaut legstað í kirkjugarðinum á Móunum vestan Nafabrúnar. Um hundrað gestir sóttu kirkjuna á þessum merku tímamótum og það var hlýlegt andrúmsloft í messunni. Séra Sigríður Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari, séra Halla Rut Stefánsdóttir flutti ritningarorðin.

Ræða séra Gísla

Séra Gísli Gunnarsson vígslubiskup predikaði, rakti söguna og upphaf byggðar á Króknum (árið 1892, 186 íbúar vígsluár kirkjunnar) og kryddaði með frásögn af Birni á Sveinsstöðum sem kom hagalögðum sínum í verð í sinni fyrstu kaupstaðarferð í Krókinn en andvirði ullarlagðanna dugði fyrir vasahníf og vínarbrauði. Séra Gísla mæltist vel, enda með bestu ræðumönnum.

Úr nýju sálmabókinni

Svo öllu sé til haga haldið voru sálmarnir númer 11, 466, 3, 5, 4 úr nýútkomnu sálmabókinni. Þessi orð og númer verða því samtímaheimild að hundrað árum liðnum ef á þarf að halda. Söngur kirkjukórsins var með ágætum undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar sem á 35 ára starfsafmæli sem organisti og kórstjóri. Kirkjukórinn var stofnaður fyrir 80 árum að frumkvæði Eyþórs Stefánssonar og Sigurðar Birkis.

Örtónleikar um fyrrum organista

Að lokinni messu var boðið upp á svokallaða örtónleika undir stjórn Helgu Rósar Indriðadóttur við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. Formaður kórsins, Davíð Jóhannsson, kynnti dagskrána með innskotum kórfélaga þar sem sagt var stuttlega frá höfundum laganna sem allir höfðu verið organistar við kirkjuna og allir tónskáld. Fyrstan má telja Pétur Sigurðsson frá Geirmundarstöðum, þá Eyþór Stefánsson sem lengst allra gegndi undirleiknum og kórstjórn og loks Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum um áratugs skeið. Söngur kórsins var með ágætum, topp prógramm. Lög og textar eru sem helgidómur í huga og hjarta allra Skagfirðinga. „Erla“ Péturs, Lindin eftir Eyþór með einsöng Jóhanns í Keflavík, frábær túlkun. Þá Á vegamótum sem orðið er sígilt. Sumarlag eftir Jón, síðan Hallarfrúin með texta Davíðs Stefánssonar, sem fer til hæstu hæða í söng og túlkun. Helga Rós Indriðadóttir söng einsöng með þeim glæsibrag sem einkennir fremstu söngkonum. Ó Jesúbarn var lokalag þessara frábæru örtónleika og við hæfi að loka dagskránni með þessu undurfagra jólalagi Eyþórs Stefánssonar.

Svignandi veisluborð

Viðhafnarveisla var í Ljósheimum, séra Sigríður bauð gesti velkomna og flutti meðal annars hlýjar kveðjur frá séra Þóri Stephensen sem gat ekki verið viðstaddur vegna veikinda. Þá flutti hún kveðju frá séra Guðbjörgu Jóhannesdóttur og Brynjari Pálssyni f.v. sóknarnefndarmanni. Ingimar Jóhannsson, formaður safnaðarnefndar, flutti yfirlit um kirkjulegt starf og athafnasemi í Safnaðarheimili með aðstoð Jóhönnu Björnsdóttur, ritara nefndarinnar. Davíð Jóhannsson, formaður kórsins, flutti snjalla ræða sem endaði með afhendingu veglegs blómvandar til kórstjórans, Rögnvaldar. Séra Hjálmar Jónsson tók til máls og fór með snjallar vísur og flutti prýðilega og stutta ræðu en margs var að minnast. Séra Sigríður sleit samkomunni og allir vel mettir andlegrar næringar að viðbættum glæsilegum viðurgjörningi þar sem borð svignuðu.

/Hörður Ingimarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir