140 milljónir í gervigrasvöll
Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar sl. fimmtudag var lögð fram tillaga um að gerð yrði breyting á framkvæmdaáætlun eignasjóðs 2016 þannig að 140 milljónir króna yrðu fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki.
„Hönnun við breytingar á Sundlaug standa enn yfir og ekki verður mögulegt að hefja framkvæmdir við hana fyrr en á árinu 2017,“ segir í fundargerð. Byggðarráð samþykkti tillöguna. Á sama fundi var farið yfir drög að hönnun að gervigrasvelli á Sauðárkróki og samþykkti byggðarráð að haldið yrði áfram miðað við fyrirliggjandi drög. /KSE