15 dælustöðvar hitaveitu keyrðar á varaaflsvélum í desemberóveðrinu

Farið var yfir greinargerð Skagafjarðarveitna vegna óveðurs dagana 10. til 13. desember sl. á fundi veitunefndar Svf. Skagafjarðar. Þar kom fram að langflestar dælustöðvar hitaveitu séu búnar varaaflsvélum sem fara sjálfkrafa í gang við rafmagnsleysi.

„Í óveðrinu voru um 15 dælustöðvar hitaveitu keyrðar á varaaflsvélum vegna rafmagnsleysis eða rafmagnstruflana og tókst að halda heitu vatni á öllum veitusvæðum án langvarandi truflana. Veitunefnd hrósar starfsmönnum Skagafjarðarveitna fyrir vel unnin störf.

Nefndin bendir á að uppbygging undanfarinna ára í hitaveitu sönnuðu gildi sitt í óveðrinu og telur nauðsynlegt að halda uppbyggingunni áfram á næstu árum,“ segir í fundargerð veitunefndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir