16 verðlaun til UMSS

16. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.  Þrátt fyrir fremur kalda og vindasama daga, gekk mótið vel fyrir sig og þátttakendur skemmtu sér vel.
Keppendur UMSS unnu til 16 verðlauna á mótinu, en einnig unnu Skagfirðingar til verðlauna með öðrum félögum.

Verðlaunahafar UMSS:

Vala Rún Stefánsdóttir (14):  1. sæti í spjótkasti, 2. sæti í kúluvarpi og 2.-3.sæti í hástökki.

Stúlknasveit UMSS (16-17):  1. sæti í 4x100m boðhlaupi. Í sveitinni voru Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Ragna Vigdís Vésteinsdóttir og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir.

Fríða Ísabel Friðriksdóttir (15):  2. sæti í 100m hlaupi og langstökki.

Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (16-17):  2. sæti í 100m hlaupi og 3. sæti í hástökki.

Berglind Gunnarsdóttir (12):  3. sæti í kúluvarpi.

Haukur Ingvi Marinósson (15):  3. sæti í kúluvarpi.

Ragna Vigdís Vésteinsdóttir (16-17):  3. sæti í langstökki.

Piltasveit UMSS og fl. (14):  3. sæti í 4x100m boðhlaupi.  Rúnar Ingi Stefánsson og Halldór Broddi Þorsteinsson mynduðu sveitina ásamt hlaupurum úr HSS og UDN.

Hjá strákum 13-14 ára í körfubolta kepptu Halldór Broddi Þorsteinsson, Guðni Bjarni Kristjánsson, Haukur Sindri Karlsson, Rúnar Ingi Stefánsson og fengu til liðs við sig þá Þorgeir frá Borgarnesi og Almar frá Hvammstanga  og enduðu í 3. sæti

Þeir Ragnar Ágústson og Skírnir Már Skaftason kepptu í flokki 11-12 ára í körfubolta með Þór frá Akureyri og gerðu sér lítið fyrir og unnu gullið.

Pálmi Þórsson keppti með  HSH (Snæfelli) í körfubolta í 15-16 ára og þeir lentu i 3. sæti.

Helga Þórsdóttir, Árdís Eva Skaptadóttir og Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir kepptu með  HSH í körfubolta í 17-18 ára og lentu í  2. sæti.

Í golfi 16 – 18 ára strákar – höggleikur án forgjafar lenti Jónas Már Kristjánsson GSS í 3. sæti.

Í 50 metra Bringusundi var Hákon Ingi Stefánsson UMSS í 2. sæti.

Tobías Frey Sigurjónsson var í 3. sæti í mótorkrossi.

Fleiri fréttir