170 kg af lambakjöti úr Skagafirði til mæðrastyrksnefndar
Salman Tamimi, forstöðumaður félags múslima, og eiginkona hans Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir gáfu í morgun 170 kg af lambakjöti til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Þau hjónin keyptu lambalæri fyrir hundrað þúsund krónur af Kaupfélagi Skagfirðinga og ákvað fyrirtækið í framhaldinu að styrkja málefnið fyrir sömu upphæð. Því fékk Mæðrastyrksnefnd 170 kg af lambakjöti gefins að andvirði tvö hundruð þúsund króna.
„Við hjónin ákváðum einn daginn að það væri góð hugmynd að gefa Mæðrastyrksnefnd veglega gjöf þar sem við áttum smá pening á milli handanna,“ segir Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir, í samtali við Vísi í dag.
„Þessu var mjög vel tekið og var mikil ánægja hjá starfsfólki Mæðrastyrksnefndar. Það er gott að geta glatt aðra á þessum tíma ársins.“
„Þó ég sé múslimi þá gleðst ég með öðrum um jólin. Jólin eru alveg nauðsynleg hátíð og ég hlakka til þeirra á hverju ári,“ segir Salman Tamimi. „Það geta allir gefið eitthvað, sama hvað það er. Það er hugurinn sem gildir.“