20 opinber störf í Skagafirði í hættu

Sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar lýsir furðu sinni á að með framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2014 skuli ríkisstjórn Íslands enn halda áfram þeirri aðför að sveitarfélaginu sem viðgengist hefur frá efnahagshruninu árið 2008. Á síðasta fundi sveitarstjórnarinnar var málið tekið fyrir en fram hefur komið við upplýsingaöflun Samtaka sveitarfélaga á norðurlandi vestra, að frá árinu 2008 og til dagsins í dag hafa hátt í 50 stöðugildi á vegum ríkisins í Skagafirði verið lögð niður eða flutt til annarra landsvæða.

Segir í fundargerð að þessar tölur séu mjög í takt við nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir Byggðastofnun en hún leiðir í ljós að enginn annar landshluti hefur orðið fyrir jafn miklum hlutfallslegum niðurskurði af hálfu ríkisins og norðurland vestra. Á sama tíma hefur ríkisstörfum fjölgað á höfuðborgarsvæðinu og nálægum landshlutum.

„Nái fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2014 fram að ganga óbreytt mun störfum á vegum ríkisins í Skagafirði fækka um a.m.k. 20 til viðbótar við þau störf sem þegar eru horfin úr héraðinu. Það er í hróplegu ósamræmi við allt sem eðlilegt getur talist í jafnræði við íbúa landsins og fögur fyrirheit í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um jafnrétti til búsetu, að íbúar landsins fái notið þeirrar grunnþjónustu sem gera á kröfu um í nútímasamfélagi og að stuðlað verði að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa.“

Sveitarstjórnin bókaði og leggur áherslu á að Skagfirðingar séu reiðubúnir að axla byrðar þær sem lagðar hafa verið á landsmenn til jafns við aðra íbúa en með öllu sé hins vegar óverjandi að Skagfirðingar þurfi að taka á sig mun meiri þjónustuskerðingar og niðurskurð en aðrir landsmenn. Bendir sveitarstjórnin á að hagvöxtur á svæðinu var neikvæður á árunum fyrir efnahagshrunið og því ekki þensluvalda að finna þar.

„Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að draga nú þegar til baka boðaðan niðurskurð gagnvart starfsemi ríkisins á svæðinu og beita sér þvert á móti fyrir eðlilegri uppbyggingu og þjónustu til jafns við aðra landshluta,“ segir í ályktun sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar.

Fleiri fréttir