20 starfsmenn FISK í fisktækninám

Nú í haust fer af stað nám í fisktækni á vegum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskólans og FISK Seafood ehf. í samvinnu við Fisktækniskóla Íslands. Á heimasíðu FISK Seafood kemur fram að 20 starfsmenn fyrirtækisins hafa skráð sig til þátttöku en af þeim fóru 16 í gegnum raunfærnimat í vor og hafa þegar lokið hluta af náminu.

Miðvikudaginn 28. ágúst  var haldinn kynningarfundur í Verinu fyrir væntanlega nemendur og komu fulltrúar FNV og Farskólans og kynntu skipulag og framkvæmd námsins. Kennt verður eftir kl. 16 á daginn og um helgar þannig að hægt er að stunda námið með vinnu.

Námið er fjórar annir og lýkur með framhaldsskólaprófi og starfsheitinu Fisktæknir.

Fleiri fréttir