250 ára afmæli kirkjunnar í öndvegi á Hólahátíð

Um helgina fór fram árleg Hólahátíð, þar sem þess var einnig minnst að Hóladómkirkja á 250 ára afmæli síðar á þessu ári. Af því tilefni voru byggingarsögu kirkjunnar gerð góð skil í dagskránni. Kristján Jóhannsson söng einsöng á hátíðinni og Vilhjálmur Egilsson, nýráðinn rektor Háskólans á Bifröst flutti Hólaræðuna. Ætla má að um 200 manns hafi sótt hátíðina og var forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson á meðal hátíðargesta.

Þorsteinn Gunnarsson arkítekt og Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) unnu sýningu um byggingarsögu kirkjunnar var opin alla helgina í Auðunarstofu. Þá flutti leikfélag Hofsós nýtt leikverk, Sabinsky og kirkjubyggingin, eftir Björgu Baldursdóttur grunnskólakennara á Hólum í leikstjórn Maríu Grétu Ólafsdóttur, sem búsett er í Hjaltadal. Verkið var sýnt þrisvar yfir helgina og að sögn Solveigar Láru Guðmundsdóttur vígslubiskups vonast hún til að það verði sýnt aftur síðar, enda um merkilegt verk að ræða.

Farnar voru þrjár mismunandi gönguferðir með leiðsögn, sú lengsta var sjö tíma pílagrímaganga yfir Heljardalsheiði. Þá gafst gestum tækifæri til að vinna með sandstein úr Hólabyrðu, en hann var einmitt notaður við kirkjubygginguna.

Sr. Agnes Sigurðardóttir predikaði við messu sem fram fór í Hóladómkirkju í gær og Kristján Jóhannsson söng einsöng. Bræðurnir Sveinn og Hjálmar Sigurbjörnssynir léku á trompet. Eftir veglegt afmæliskaffi í Hólaskóla var samkoma í Hóladómkirkju þar sem Kristján söng einnig einsöng, sr. Hjörtur Pálsson flutti frumsamið ljóð afmælishátíðarinnar og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ávarpaði samkomuna.

Hólaræðuna flutti Vilhjálmur Egilsson og gerði hann mikilvægi Hólastaðar innan kirkjunnar og menntakerfisins að umræðuefni og lagði m.a. til að í framtíðinni yrðu Hólar miðstöð friðar og framfara. „Á Hólum getur starfsemi kirkjunnar og skólans eflst saman og staðurinn öðlast nýja frægð víða um heiminn,“ sagði Vilhjálmur í ræðu sinni.

 

Fleiri fréttir