26. Króksmót Tindastóls farið af stað

Króksmótið, fótboltamót fyrir stráka, var sett nú í morgun á Sauðárkróksvelli að viðstöddum um 1500 þátttakendum og gestum að því er segir á vefsíðu mótsins http://kroksmot.wordpress.com. Leikir hófust klukkan 9.30 og standa til 18.30 í dag.

Að leikjum loknum er kvöldverður í íþróttahúsinu og síðan kvöldvaka áður en leikmenn og foreldrar hvíla sig fyrir átök sunnudagsins. Allir Skagfirðingar eru hvattir til að kíkja á völlinn og fylgjast með skemmtilegum bolta en einnig er mjög líklegt að frændi eða fjölskylduvinur sé að tækla og skora af mikilli list.

Fleiri fréttir