4. flokkur karla berst um sæti í úrslitakeppninni
Strákarnir í 4. flokki hjá Tindastól hafa staðið sig mjög vel í sumar en þeir eiga eftir einn leik í riðlakeppni Íslandsmótsins. Þeir eru nú í öðru sæti í riðlinum með 26 stig. Ef strákunum tekst að sigra síðasta leikinn nk. sunnudag komast þeir í úrslitakeppnina.
Lið Hattar er í fyrsta sæti riðilsins með 29 stig, Tindastóll fylgir fast á eftir og situr í öðru sæti með 26 stig og lið Fjarðabyggðar/Leiknis í þriðja sæti með 25 stig.
Síðasti leikurinn hjá strákunum í riðlinum verður sunnudaginn 1. september nk. en þá taka strákarnir á móti liði Fjarðabyggðar/Leiknis2 á Sauðárkróksvelli. Leikurinn hefst kl.15.
Nú er um að gera að drífa sig á völlinn og hvetja ungu og efnilegu strákana okkar áfram. Áfram Tindastóll!