47 brautskráðir frá Hólum

Háskólinn á Hólum brautskráði frá skólanum sl föstudag 47 nemendur með alls 49 skírteini en tveir nemendur luku námi á tveimur brautum. Mikil hátíð var á Hólum í tilefni dagsins en hátíðarhöldin hófust á reiðvellinum með reiðsýningu útskriftanema í þjálfun og reiðkennslu. Sjálf brautskráningin fór síðan fram í Hóladómkirkju.

Sagt er frá útskriftinni á vef Hólaskóla: „Athöfnin var með hefðbundnu sniði og auk afhendingar brautskráningarskírteina fól dagskráin í sér ávörp, tónlistaratriði og afhendingu viðurkenninga. Að ávarpi rektors loknu sáu deildarstjórar um sjálfa brautskráninguna. Alls voru 47 nemar brautskráðir, með samtals 49 skírteini þar sem tveir þeirra voru nú formlega að ljúka tveimur brautum. Þeir skiptust þannig milli deilda og brauta:

Frá ferðamáladeild:

Diplóma í viðburðastjórnun: 6

Diplóma í ferðamálafræði: 6

BA í ferðamálafræði: 4

Frá fiskeldis- og fiskalíffræðideild:

Diplóma í fiskeldi: 1

Frá hestafræðideild:

Diplóma í tamningum: 20

Diplóma í þjálfun og reiðkennslu: 12

Iðnaðarráðuneytið - ráðuneyti ferðamála - veitti viðurkenningar fyrir góðan námsárangur á ferðamálabrautum skólans. Þær hlutu: Jóhann Ágúst Jóhannsson, (diplóma í viðburðastjórnun), Hulda Jónsdóttir (diplóma í ferðamálafræði) og Hörður Elís Finnbogason (BA í ferðamálafræði).

Félag tamningamanna veitir árlega tamningabikarinn, þeim nemanda er hlýtur hæstu einkunn á tamningarprófi. Handhafi tamningabikarsins árið 2011 er Hekla-Katharina Kristinsdóttir.

Hefð er fyrir því að formaður Félags tamningamanna mæti á brautskráningarathöfn Hólaskóla og færi nýútskrifaða þjálfara og reiðkennara í einkennisjakka félagsins. Formaður er nú Sigrún Ólafsdóttir, og annaðist hún þetta ánægjulega embættisverk.

Í þessum hópi (diplóma í þjálfun og reiðkennslu) eru veitt fern verðlaun. Félag tamningamanna veitir reiðmennskuverðlaun FT og koma þau í hlut þess nema er hlýtur hæstu einkunn í reiðmennsku og þjálfun. Verslunin Ástund veitir Ástundarhestinn, fyrir hið sama. LH-styttan er veitt þeim er hlýtur hæstu einkunn í reiðkennslu og kennslufræði. Og Morgunblaðið veitir Morgunblaðshnakkinn, þeim nemanda er hlýtur hæstu lokaeinkunn á brautinni. Er skemmst frá því að segja að allar þessar viðurkenningar féllu Sylvíu Sigurbjörnsdóttur í skaut.

Að athöfn lokinn var viðstöddum boðið til kaffisamsætis í aðalbyggingu Hólaskóla.

Nýbrautskráðum nemendum fylgja árnaðaróskir starfsmanna skólans. Verið ávallt velkomin heim að Hólum.“

Fleiri fréttir