4.flokkur karla kominn í úrslitakeppnina

Það var ansi blautt á Sauðárkróksvelli í dag þegar 4. flokkur karla sigraði lið Fjarðabyggðar/Leiknis með fjórum mörkum gegn einu. Halldór Broddi Þorsteinsson gerði þrjú mörk og Pétur Guðbjörn Sigurðarson eitt. Á heimasíðu Tindastóls segir að þessi úrslit þýði það að drengirnir eru efstir í sínum riðli og leika um næstu helgi til úrslita. 

Það eru átta lið sem komast í úrslitakeppnina og verður leikið í tveimur fjögurra liða riðlum.  Tindastóll leikur einn leik á föstudag, annan á sunnudag og þann þriðja á sunnudag.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá leiknum í dag og HÉR má sjá myndir frá veislu sem foreldrar héldu fyrir drengina að leik loknum.

.

Fleiri fréttir