Áætlunarflug til Sauðárkróks ekki styrkt af ríkinu

Á fundi Byggðaráðs Svf. Skagafjarðar í síðustu viku var lagt fram bréf frá innanríkisráðuneytinu varðandi stuðning við áætlunarflug til og frá Alexandersflugvelli. Í bréfinu segir:"Staða ríkissjóðs er þröng og er ekki gert ráð fyrir að áætlunarflugið verði styrkt af ríkinu, hvorki á núgildandi samgönguáætlun né fjárlögum. Því miður eru við þessar aðstæður ekki forsendur til þess að verða við beiðni yðar um frekari stuðning á þessu stigi."

Stefán Vagn Stefánsson, Bjarni Jónsson, Jón Magnússon og Sigurjón Þórðarson lögð fram eftirfarandi bókun:

„Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðarsamfélög líkt og Sveitarfélagið Skagafjörð verður seint að fullu metið. Þeir samningar sem sveitarfélagið gerði við flugfélagið Air Artic og sveitarstjórn samþykkti samróma eru úr gildi og því ríkir óvissa um áframhald áætlunarflugs til og frá Sauðárkróki. Sú niðurstaða sem liggur fyrir í bréfi innanríkisráðuneytisins eru mikil vonbrigði og þau rök að samgöngubætur í einu kjördæmi hafi áhrif á framlög til almenningssamgangna í öðru ganga ekki upp.

Ef þessi flugleið leggst af verður Norðurland vestra eini landshlutinn utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar sem ekki nýtur almenningsflugsamgangna. Slíkt er óásættanlegt með öllu og skerðir verulega samkeppnishæfni svæðisins.

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á ríkið að endurskoða afstöðu sína og tryggja að áfram verði flogið á milli Skagafjarðar og Reykjavíkur og styrkja þar með stoðir hinna dreifðu byggða landsins í anda þeirra byggðarstefnu sem boðuð hefur verið.“

Þá lagði Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fram eftirfarandi bókun:

„Bókun byggðarráðs frá síðasta fundi og meirihluta sveitarstjórnar í gær á sveitarstjórnarfulltrúa Samfylkingarinnar. Bókun sem vísar til þess að undirrituð stundi einkennileg vinnubrögð með því að bóka kostnað sveitarfélagsins við flug til og frá Sauðárkróki, hvetur undirritaða ekki til að skrifa undir ofanritaða bókun byggðarráðs.“

Fleiri fréttir