Aðalfundur Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði

Aðalfundur Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði verður haldinn í félagsheimilinu í Hegranesi mánudagskvöldið 24. mars nk. Þau leiðu mistök voru gerð í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins að lógó og heimasíða Ferðafélags Skagfirðinga var birt með auglýsingunni en félögin tengjast ekki.

Fundurinn hefst kl. 19 með léttum kvöldverði og að því búnu taka við venjubundin aðalfundarstörf. „Við hvetjum nýja aðila til að mæta á fundinn og kynna sér starfsemi félagsins,“ segir í auglýsingunni.

 

Fleiri fréttir