Aðalfundur Hestamannafélagsins Þyts
Aðalfundur Hestamannafélagsins Þyts verður haldinn þriðjudaginn 25. mars nk. í Þytsheimum og hefst kl. 20:30. Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins gefa tveir núverandi stjórnarmenn ekki kost á sér áfram í stjórn.
Dagskrá fundar er með hefðbundnu sniði:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Lagðir fram reikningar félagsins
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
5. Árgjald
6. Kosningar
a. Kosning stjórnar
b. Þrír meðstjórnendur til tveggja ára
c. Tveir varamenn stjórnar til eins árs.
d. Tveir skoðunarmenn til eins árs
e. Tveir varamenn skoðunarmanna til eins árs
f. Sex fulltrúar á Héraðsþing USVH og sex til vara
g. Fjórir fulltrúar á LH þing
7. Önnur mál.