Aðalfundur Sjálfsbjargar í dag

Sjálfsbjörg í Skagafirði heldur aðalfund sinn í dag klukkan 17:30 í Húsi frítímans. Á fundinn mæta góðir gestir: Rannveig Bjarnadóttir, forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar, Grétar Pétur Geirsson formaður landssambands Sjálfsbjargar, Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar og Ásta B. Pálmadóttir  sveitastjóri Svf. Skagafjarðar.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Rannveig Bjarnadóttir kynna starfsemi Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar og þeir Grétar og Bergur ræða um það sem helst brennur á fólki núna þ.e. kjarabætur og bifreiðamál. Þá mun Ásta Pálma ræða um úrbætur varðandi aðgengismál í sveitarfélaginu.

Félagar eru hvattir til að fjölmenna.

Fleiri fréttir