Æfingar barna og unglinga að hefjast hjá GSS

Æfingar barna og unglinga hjá Golfklúbbi Sauðárkróks eru að hefjast í inniaðstöðu Golfklúbbsins á Flötinni. Leiðbeinendur á þessum æfingum verða Hjörtur, Árný og Arnar Geir. Þá verður Flötin einnig opin alla þriðjudaga kl.17:00 – 19:00 fyrir kylfinga á öllum aldri til að pútta og slá í net.

Á æfingum barna og unglinga verður notast við SNAG æfingasett fyrir yngstu iðkendurna og byrjendur. Þá verða gerðar vipp og púttæfingar ásamt því að slegið verður í net. Einnig verður oftast aðgangur að golfherminum á þessum tímum. „Við vonumst til að sjá sem allra flesta,“ segir á heimasíðunni.

Æfingarnar verða sem hér segir í vetur:

  • 11 ára og yngri verða á fimmtudögum kl.17:30-18:30. – Fyrsta æfing 30.janúar.
  • 12 ára og eldri verða á sunnudögum kl.17:00-19:00. Fyrsta æfing 2. febrúar.

 

Fleiri fréttir