Æskulýðssýning Þyts á verkalýðsdaginn
feykir.is
Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
30.04.2012
kl. 10.09
Æskulýðssýning hestamannafélagsins Þyts verður haldin á morgun, verkalýðsdaginn 1. maí, í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga kl. 17:00.
Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins munu krakkar úr æskulýðsstarfinu sýna ýmis fjölbreytt og skemmtileg atriði á hestum.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
