Ætla að óska eftir viðræðum við velferðarráðuneytið um að sveitarfélagið taki við rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar ákvað á fundi sínum í gær að óska eftir viðræðum við velferðarráðuneytið um að sveitarfélagið taki við rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og núverandi verkefnum hennar, samkvæmt samningi við ríkið. Það með er framkomnum áformum velferðarráðuneytis um sameiningu heilbrigðisstofnana á norðurlandi alfarið hafnað.

Í fundargerð segir að ljóst sé að það framlag sem heilbrigðistofnuninni á Sauðárkróki er ætlað í fjárlögum fyrir árið 2014 mun þýða áframhaldandi niðurskurð og fækkun starfa og mikla þjónustuskerðingu fyrir íbúa héraðsins. Við slíkt verði ekki unað og skorar

sveitarstjórn á heilbrigðisráðherra að endurskoða framkomnar hugmyndir og óskar formlega eftir viðræðum við ráðherra um yfirtöku stofnunarinnar og leiðir til að núverandi þjónusta skerðist ekki frekar en orðið er.

Þá bendir Sveitarstjórnin á  að áform stjórnvalda gangi þvert gegn tveimur mjög viðamiklum og metnaðarfullum stefnumiðum stjórnvalda sem boðuð hafa verið og unnið að á liðnum árum. Er þar annars vegar um að ræða aukinn tilflutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga, þ.m.t. tilfærslu heilsugæslu og öldrunarþjónustu frá ríki til sveitarfélaga til að tryggja góða þjónustu og stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúana og hins vegar Sóknaráætlun landshluta þar sem norðurland vestra er skilgreint sem eitt sóknarsvæði.

Enginn landshluti hefur orðið jafn illa fyrir barðinu á niðurskurði í ríkisrekstri eins og norðurland vestra, segir í fundargerð, líkt og staðfest er í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. „Langverst hefur niðurskurðurinn bitnað á heilbrigðisþjónustu á svæðinu og þá ekki síst á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Á sama tíma hefur ársverkum ríkisstarfsmanna fjölgað verulega á höfuðborgarsvæðinu, suðurnesjum og suðurlandi.“

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir