Ætlaði að ganga til byggða
feykir.is
Skagafjörður
14.03.2014
kl. 15.18
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð var kölluð út í nótt til að fylgja sjúkrabíl á ófæra Öxnadalsheiðina. Neyðarlínu hafði borist ósk um aðstoð frá stúlku er hafði haldið akandi á heiðina og fest bíl sinn.
„Var henni tilkynnt að hún gæti þurft að bíða í bílnum þar til heiðin yrði rudd í morgunsárið. Stuttu síðar hringdi hún aftur, sagðist vera orðin veik og ætla að ganga til byggða,“ segir á vef Landsbjargar.
Björgunarsveitir lögðu á heiðina á jeppum og vélsleðum auk þess sem sjúkrabíll var með í för. Fannst stúlkan fljótlega og var hún flutt á sjúkrahúsið á Akureyri. 15 björgunarsveitamenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan sjö í morgun.