Ætt og óætt í kökubingói

Það var Guðmundur Peng Sveinsson sem hreppti aðalvinning í kökubingói Léttfeta sem haldið var í gær í félagsheimili þeirra í Tjarnabæ á Sauðárkróki. Hreppti hann dýrindis tertu og 10 kg. fiskblokk í aðalvinning en áður var hann búinn að næla sér í kleinupoka. 

Það var góð stemning hjá unga fólkinu sem lét sig ekki vanta á bingóið enda alltaf gaman að spila skemmtilega leiki. Margir vinningar voru í boði bæði ætir og óætir, þ.e. kökur og handverk, sem runnu út og nokkrir fóru með fleiri en einn heim þó alltaf séu einhverjir sem enga vinninga fá.

Léttfeti hefur undanfarnar þrjár helgar verið með uppákomur til styrktar eldhústækjakaupum Tjarnarbæjar en þar er aðallega verið að fjármagna suðu- og bakstursofn sem félaginu áskotnaðist. Hefur hann reynst afar vel fyrir matarveislur sem haldnar eru í húsinu. Um næstu helgi áætlar fjáröflunarnefndin að halda smáréttakvöld og segir Sigríður Ingólfsdóttir, sem staðið hefur vaktina í eldhúsinu, margt spennandi vera á matseðlinum og hvetur Léttfetafélaga til að taka sunnudagskvöldið frá og eiga skemmtilega stund saman í Tjarnabæ.

Fleiri fréttir