Afbragðs aflabrögð hjá Skagafjarðarskipum
feykir.is
Skagafjörður
08.12.2014
kl. 09.49
Landað var um 115 tonnum af þorski úr Klakki SK-5 í gær eftir 5 daga veiðiferð. Samkvæmt vef Skagafjarðarhafna hafa afbragðs aflabrögð verið á Vestfjarðamiðum síðustu vikur og hafa Farsæll og Klakkur verið fljótir að fylla sig.
Farsæll SH-30 er búinn að landa um 620 tonnum til vinnslu hjá FISK Seafood og Klakkur SK-5 um 1.555 tonnum af þorski á nýju fiskveiðiári sem hófst 1. september.
Á vefnum segir ennfremur að Málmey SK-1 er á leið til Íslands, eftir gagngerar breytingar í Gdansk í Póllandi, en er nú við bryggju í Færeyjum. Eitthvað hefur þeim seinkað en áætlunin var að vera á Akranesi á morgun mánudag 8. desember.