Áfram flogið á Sauðárkrók

Samningur Eyjaflugs um áætlunarflug milli Reykjavíkur og Sauðárkróks hefur verið framlengdur til áramóta. Byggðarráð Skagafjarðar hefur samþykkt þetta. Sveitarfélagið þurfti að greiða um 27 milljónir króna með fluginu á þessu ári, þar sem mun færri farþegar hafa nýtt sér það en gert var ráð fyrir. RÚV greinir frá þessu.

Í kjölfarið hafnaði innanríkisráðuneytið óskum sveitarfélagsins um frekari stuðning ríkisins við flugið. Byggðarráð Skagafjarðar leggur á það þunga áherslu að sveitarfélagið verði haft með í næsta útboði ríkisins á innanlandsflugi. Leggist flug til Sauðárkróks af, verði Norðurland vestra eini landshlutinn utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar sem ekki nýtur áætlunarflugs. Þá skorar byggðarráðið á stjórnvöld að auka fjárframlög til innanlandsflugs í anda þeirrar byggðastefnu sem boðuð hefur verið.

Fleiri fréttir