Ágætu viðskiptavinir Skagfirðingabúðar - Heimsendingar á Sauðárkróki

Ákveðið hefur verið að hafa fyrirkomulag við heimsendingar á Sauðárkróki óbreyttar frá því sem verið hefur. Við óskum eftir að viðskiptavinir reyni að panta fyrir eina viku í senn til að gera okkur þetta framkvæmanlegra. Ekki verður gjaldtaka fyrir heimsendingar og fyrirkomulag því eins og verið hefur.

Pantanir sem berast fyrir kl 13:00 verða afgreiddar samdægurs. Best er að senda pöntun á netfangið pantanir@skagfirdingabud.is eða hringja í síma 4554545. Þetta fyrirkomulag verður endurskoðað á miðju þessu ári.

Óskum eftir góðu samstarfi við viðskiptavini á erfiðum tímum. Góðar kveðjur til ykkar allra.
Skagfirðingabúð og starfsfólk Skagfirðingabúðar.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir