Agnar Þór stýrir liði Líflands

Lið Líflands tekur þátt í KS deildinni í ár.
Lið Líflands tekur þátt í KS deildinni í ár.

Lið Líflands er fimmta liðið sem kynnt er til leiks fyrir komandi tímabil í KS-Deildinni 2016. Liðstjóri er Agnar Þór Magnússon.

Með Agnari í liði eru Birna Tryggvadóttir, Guðmundur Karl Tryggvason og Þór Jónsteinsson. Hér er á ferðinni nýtt lið sem vann sér þáttökurétt í gegnum úrtöku KS-Deildarinnar núna í janúar, en KS deildin leggur mikla áherslu á að nýir keppendur hafi ætíð möguleika á að öðlast þáttökurétt í deildinni.
„Það verður gaman að fylgjast með þessu nýja liði sem er skipað miklum reynsluboltum. Þarna eru á ferð frábærir knapar sem eru þekktir fyrir að vera ætíð með góð hross undir höndum. Ekki skemmir fyrir að þessir liðsmenn koma allir úr Eyjafirði og bjóðum við þá sérstaklega velkomna,“ segir í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands.


Fleiri fréttir