Áhersla lögð á leit á sjó

Björgunarsveitir sem leitað hafa að manninum sem féll í Hjaltadalsá voru settar í hvíld í gærkvöldi en hægt var á leitinni í samráði við lögreglu. Í dag verður leitað að nýju og farið í meiri rannsóknarvinnu og fleiri reköld sett í ána til að skoða hvert straumurinn ber þau, samkvæmt vef Landsbjargar.

Þar segir að þau reköld sem þegar hafa verið sett út hafa farið með ánni út í sjó og því hefur verið lögð áhersla á að leita á sjó utan við ósinn. Það hefur þó ekki gengið nægilega vel þar sem mikil alda fylgir norðanáttinni sem er á svæðinu. Búið er að ganga bakka árinnar mörgum sinnum sem og fjörur sitthvoru megin við ósinn en það hefur engan árangur borið.

Fleiri fréttir