Áhöfnin á Húna II á Sauðárkróki á morgun
Í byrjun júli lagði eikarbáturinn Húni II upp í siglingu hringinn í kringum landið með tónlistarfólk. Um er að ræða samstarfsverkefni Húna II, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Rúv. Áhöfnin á Húna er vel skipuð tónlistarfólkinu Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni sem ætla að halda 16 tónleika í sjávarbyggðum landsins.
Húna II þekkja flestir en hann er 50 ára gamall eikarbátur sem smíðaður var í skipasmíðastöð KEA
Áhöfnin á Húna II. Mynd: facebook.com/AhofninaHuna
Húni II verður á Sauðárkróki á morgun, þann 18. júlí og hefjast tónleikarnir kl. 20:00.