Áhorfendapallar og gólfefni í íþróttahúsið Sauðárkróki
Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar kom saman til fundar s.l. þriðjudag og tók til umsagnar málefni sem lengi hefur verið að velkjast fyrir íþróttahreyfingunni á Króknum og þykir brýnt að afgreiða sem fyrst. Þar er fyrst og fremst um að ræða skipti á gólfefnum í Íþróttahúsinu en þegar húsið var byggt var dúkur lagður á gólfið í stað parkets.
Hafa íþróttaiðkendur kvartað yfir álagsþreytu og meiri slysahættu en ella og hefur Körfuknattleikssamband Íslands sett skilyrði um að þau lið sem leika í efstu deild leiki sína heimaleiki í húsi þar sem er parketgólf en sæti sektum ella.
Nefndin vill að við val á gólfefni í húsið sé fullt tillit tekið til þess hvað best hentar íþróttaiðkun barna, bæði hvað hljóðvist og undirlag varðar. Nefndin leggur til að farið verði í verkefnið sem fyrst og valið verði parket með fjaðrandi undirlagi.