AJ-leðursaumur opnar vinnustofu sína - Vinnur með hágæða leður og fiskroð
AJ-leðursaumur opnar leðurvinnustofu sína á Hjaltastöðum í Akrahreppi fyrir gesti um helgina, frá kl. 10-19. Þar er lítið gallerí sem opnað var í sumar og eru þar seldar vörur úr leðri, skinni og fiskroði.
Í vinnustofunni eru til dæmis framleiddar hnakktöskur úr selskinni og leðri, undirdýnur fyrir hesta úr íslenskri gæru og úrval af dömutöskum og fatnaði fyrir bæði dömur og herra. Aðallega er unnið úr hráefni frá Sútunarverksmiðjunni á Sauðárkróki en þar sem framleitt er hágæða leður og fiskroð. Vörur frá AJ-leðursaumi hafa einnig verið til sölu Gestastofu Sútarans og Sögusetrinu á Hólum.
„Í sumar tókum við þátt í Handverkshátíðinni á Hrafnagili og vorum með bás á Landsmóti hestamanna en einnig var afar gestkvæmt í galleríinu og mikið um sérpantanir. Sérstaða okkar liggur í því að hér gefst gestum kostur á að því að raða sjálfir saman efnum og litum og geta einnig komið með eigin snið og hugmyndir,“ sagði Anna Jóhannesdóttir handverkskona og bætir við: „Allir eru velkomnir og boðið verður upp á kaffi og kleinur í tilefni af Laufskálarétt.“