Alaskalúpína og skógarkerfill til vandræða

Á síðasta fundi umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar var lagt fram bréf stýrihóps um alaskalúpínu og skógarkerfil en hópurinn er  nefnd skipuð starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar og Landgræðslu ríkisins.

Óskað var eftir upplýsingum um útbreiðslu framangreindra tegunda í Sveitarfélaginu en kallað er eftir þátttöku sveitarfélaga og félagasamtaka á landinu að þau stemmi stigu við útbreiðslu þessara tegunda, sérstaklega þó á hálendinu og á friðuðum svæðum. Helgu Gunnlaugsdóttur garðyrkjustjóra sveitarfélagsins verður falið að skoða málið og koma með áætlun til að stemma stigu við útbreiðslu þessara tegunda.

Fleiri fréttir