Alexandra Chernyshova syngur í Skagfirðingabúð í dag
Í dag, frá klukkan 16-18 ætla þau hjón Alexandra Chernyshova og Jón Hilmarsson að vera með kynningu og áritun í Skagfirðingabúð á Ljósmyndabókinni „Ljós og náttúra Skagafjarðar“ og disknum hennar Alexöndru „Aðeins þú“ sem fylgir bókinni. Einnig ætlar Alexandra að syngja nokkur lög af disknum frá kl. 16.
Bókin er um landslag og náttúru Skagafjarðar alls 101 mynd á 96 blaðsíðum. Með bókinni fylgir CD með Alexöndru Chernyshovu sem er orðin vel þekkt á Íslandi fyrir framlag sitt til tónlistar á Norðurlandi – Ópera Skagafjarðar / Draumaraddir norðursins.
Sýnishorn af myndum er hægt að sjá HÉR