Álftagerðisbræður í Eldborgarsal Hörpu

Miðasala á Álftagerðisbræður í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 13. apríl, er hafin en þar ætla þeir að flytja öll sín vinsælustu lög. „Þessa síungu söngvasveina þarf eflaust lítið að kynna fyrir þjóðinni. Tónlist þeirra er sívinsæl í útvarpi og allt árið um kring eru Álftagerðisbræður á ferð og flugi um landið til þess að syngja fyrir þjóðina,“ segir á Miði.is.

Sérstakir gestir eru Ragnar Bjarnason og Karlakór Reykjavíkur. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar spilar undir en tónlistarstjórar eru Gunnar Þórðarson og Stefán R. Gíslason.

Söngur:
Óskar Pétursson
Sigfús Pétursson
Pétur Pétursson
Gísli Pétursson
Ragnar Bjarnason
Karlakór Reykjavíkur

Fleiri fréttir