Álftagerðisbræður með aukatónleika í Hörpu

Uppselt er orðið á tónleika með Álftagerðisbræðrum sem auglýstir voru í Eldborgarsal Hörpu sunnudagskvöldið 13. apríl. Búið er að bæta við aukatónleikum fyrr um daginn og hefjast þeir kl. 16:00.

Á tónleikunum munu bræðurnir frá Álftagerði í Skagafirði flytja öll sín vinsælustu lög við undirleik Gunnars Þórðarsonar en tónlistarstjóri með Gunnari er Stefán R. Gíslason sem stýrt hefur þeim bræðrum og leikið undir hjá þeim árum saman. Sérstakir gestir á tónleikunum eru heldur ekki af verri endanum, Raggi Bjarna og Karlakór Reykjavíkur. Reiknað er með að þeir endurgjaldi svo Ragga Bjarna aðstoðina og komi fram á 80 ára afmæli hans í haust.

Í skemmtilegu viðtali við Óskar Pétursson á baksíðu Moggans í dag kemur fram að sviðsstjórinn í Hörpu, Eyþór Árnason, komi einnig úr Skagafirðinum. „Við treystum því að hann muni haga lýsingunni á sviðinu þannig að aðeins sjáist okkar bestu hliðar. Hann verður þá líka tilbúinn með myndbönd og gamlar myndir til að varpa á skjáinn ef við bræðum úr okkur,“ segir Óskar m.a. í viðtalinu.

Fleiri fréttir