Allt á fullu í íþróttahúsinu
Það er enginn smá gangur í íþróttahúsinu þessa dagana. Byrjað var á því að rífa dúkinn upp í sl fimmtudagskvöld en vösk sveit sjálfboðaliða á vegum körfuknattleiksdeildar sá um verkið og var því lokið á laugardag.
Notaðar voru ýmsar vélar til verksins en Vinnuvélar Símonar hafa aðstoðað við verkið og þá er nú ekki að sökum að spyrja, þetta rokgengur.
Gert er ráð fyrir að hefja lagningu á parketinu á næstu dögum.
/Tindastoll.is