Alvarleg líkamsárás annan jóladag

Maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás á dansleik á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauðárkróki annan dag jóla er á hann var ráðist og skorinn með brotinni flösku. Áverkar fórnarlambsins voru á hálsi og er mikil mildi að ekki fór verr en raunin varð því litlu mátti muna.

 

Var sá er fyrir árásinni varð fluttur á Heilbrigðisstofnuna á Sauðárkróki þar sem hann gekkst undir aðgerð en hann er nú útskrifaður. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki virðist árásin hafa verið að öllu tilefnislaus en rannsókn málsins fór að mestu fram í gær.

Að öðru leyti fór jólahald friðsamlega fram að sögn lögreglu og engin umferðarslys urðu í umdæminu þrátt fyrir slæm akstursskilyrði.

Fleiri fréttir