Ályktun framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi

Mikilvægt er að þjóðin fái að greiða atkvæði um það hvort aðildarviðræður verða hafnar við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í ályktun framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í gær.

Samkvæmt lögum Framsóknarflokksins fer miðstjórn með umboð flokksins milli flokksþinga og útfærir meginstefnu hans í landsmálum. Á síðasta miðstjórnarfundi, í vor, braut Guðni Ágústsson, formaður flokksins, ísinn í Evrópumálum með því að leggja til svokallaða tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Að þjóðin greiði atkvæði um það hvort aðildarviðræður verði teknar upp við ESB og síðar að þjóðin greiði atkvæði um niðurstöðu þeirra viðræðna, aðildarsamninginn sjálfan.

Undanfarnar vikur hafa framsóknarmenn þingað í öllum kjördæmum og í 4 skipti af 5 hafa þeir ályktað um Evrópumál. Ljóst er af skoðanakönnunum að margir framsóknarmenn vilja ganga lengra en stefna flokksins frá síðasta miðstjórnarfundi gerir ráð fyrir.
Í vikunni samþykkti kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi ályktun um að hefja viðræður við ESB um aðild og upptöku evru og í lok október var samþykkt í Norðausturkjördæmi að hefja undirbúning aðildarviðræðna að ESB. Einungis niðurstöðurnar skuli lagðar í dóm kjósenda. Þar er gengið lengra en stefna flokksins segir til um. Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurkjördæmi, kjördæmi Guðna Ágústssonar, ályktaði að umræða um Evrópusambandsaðild væri mikilvæg og skoðanir með og á móti henni væru jafn réttháar.

Þá hafa margir forystumenn flokksins talað opinberlega fyrir Evrópusambandsaðild undanfarið. Birkir Jón Jónsson, þingmaður flokksins, hefur lagt til á Alþingi að kosið verði um það strax í maí hvort hafnar verði aðildarviðræður eða ekki. Þetta hafði hann áður lagt til í blaðagrein ásamt Sæunni Stefánsdóttur, ritara flokksins, og Páli Magnússyni, bæjarritara í Kópavogi.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður flokksins, skrifaði í blaðagrein í gær að enginn vafi væru lengur á því að þegar í stað þyrfti að lýsa yfir aðildarumsókn að ESB sem fyrsta skref þjóðarinnar til metnaðarfullrar framtíðar. Næsti miðstjórnarfundur flokksins verður haldinn um næstu helgi. Þar verður stefna flokksins aftur til umræðu. Búast má við fjörugum umræðum og mögulegum breytingum á stefnu flokksins í Evrópumálum.

Fleiri fréttir