Ályktun vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar tillögum um ráðstöfun veiðileyfagjalds, frá starfshópi sjávarútvegsráðherra er fela í sér viðurkenningu á þeirri miklu tilfærslu fjármagns sem við lýði er frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins og styður þá viðleitni sem í tillögunum er að finna til að tekjurnar komi til baka, a.m.k. að hluta til.
Í tillögum starfshópsins er gert ráð fyrir að tekjur af veiðigjaldi skiptist þannig að 50% renni í ríkissjóð, 40% til sjávarbyggða og 10% til þróunar- og markaðsmála í sjávarútvegi. Veiðigjald verði einn af lögmætum tekjustofnum sveitarfélaga.
Ekki síst er þetta mikilvægt á tímum þar sem gríðarlegur niðurskurður á sér stað víða um land, m.a. í heilbrigðis- og samgöngumálum, á sama tíma og atvinnulífið og ekki síst fyrirtæki á landsbyggðinni eru látin bera æ meiri skattbyrði.
Ályktunin var samþykkt á fundi Sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær 30. nóvember 2011