Ánægja með niðurfellingu sjálfskuldaábyrgðar

Landsbanki Íslands hefur fellt niður sjálfskuldaábyrgð á Húnaþing vestra upp á rúmlega 21 milljón kr. Þetta kom fram í bréfi frá bankanum sem tekið var fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 15. febrúar sl. „Sveitarstjórn Húnaþings vestra lýsir yfir mikilli ánægju með niðurstöðu þessa máls enda varðar það umtalsverða fjárhagslega hagsmuni sveitarfélagsins,“ segir í fundargerð.

Forsaga málsins er rakin í fundargerð en þar kemur fram að sveitarstjórn Húnaþings vestra hafi samþykkt á fundi sínum þann 22. ágúst sl. að hafna ósk stjórnar Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. (áður Forsvars ehf.) um undirritun skilmálabreytingar á skuldabréfi útgefnu af Forsvar ehf. vegna kaupa félagsins á hlut sveitarfélagsins í efstu hæð fasteignarinnar Höfðabraut 6 á Hvammstanga árið 2002.

Jafnframt samþykkti sveitarstjórnin að hafna því að sveitarfélagið væri í sjálfskuldarábyrgð vegna umrædds skuldabréfs og var oddvita og sveitarstjóra í samráði við lögmann sveitarfélagsins falið að tilkynna stjórn Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. og Landsbankanum hf. um þá samþykkt og að gæta ýtrustu hagsmuna sveitarfélagins í málinu

Í framhaldinu var stjórn Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. send tilkynning þessa efnis og Landsbankanum hf. bréf dags. 14. september og 5. desember 2012 auk þess sem lögmaður sveitarfélagsins veitti bankanum lokafrest til að bregðast við kröfum sveitarfélagsins með bréfi dags. 30. janúar sl.

Þann 11. febrúar sl. barst sveitarfélaginu loks bréf frá Landsbankanum hf. þar sem tilkynnt að bankinn hafi fellt niður meinta sjálfskuldarábyrgð Húnaþings vestra og hefur sveitarfélagið því verið leyst undan greiðsluskuldbindingu sem ábyrgðarmaður skv. skuldabréfinu. Fjárhæð umrædds skuldabréfs var þann 8. júní 2012 alls kr. 21.348.123,00-

 

Fleiri fréttir