Annar flokkur pakkaði BÍ/Bolungarvík saman

Strákarnir okkar í Tindastól/Hvöt annar flokkur hafa verið að gera góða hluti í sumar en nú um helgina gerðu þeir góða ferð á Ísafjörð pökkuðu heimamönnum saman í góðum 1-6 sigri sterku liði BÍ/Bolungarvíkur. Nýr markvörður liðsins átti stórleik og ljóst að sá hefur fundið fjölina sína.

Árni Arnarson, miðjumaður m.fl. karla setti á sig markmannshanskana og átti gríðarlega góðan leik í marki okkar. Framtíðarleikmaður þar á ferð. Okkar drengir voru mun betri aðilinn í leiknum og sigurinn aldrei í hættu.

Hilmar Þór skoraði þrjú mörk, Ingvi Ingvarsson skoraði tvö og Edvarð Börkur skoraði eitt mark.

Fleiri fréttir