Antonie Proctor nýr leikmaður Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá samningi við bandarískan leikmann að nafni Antonie Proctor.
Antonie er fæddur á því herrans ári 1987 og er hann 191 sm á hæð, fjölhæfur bakvörður. Hann kemur úr annaradeildarskóla Montana St. Billings og er þar með 19 stig skoruð í leik að meðatali á síðasta ári sínu í háskóla. Bindur stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls miklar vonir við að hann passi vel inn í áform liðsins fyrir komandi átök í fyrstu deildinni. /Fréttatilkynning
Hér er hægt að sjá nokkra af hápunktum Proctor á síðasta ári.