Árlegt hippaball á Ketilási
Hið árlega hippaball verður á Ketilási laugardagskvöldið 27. júlí. Hefst það stundvíslega með því að blásið verður til friðarsöngs á túninu við samkomuhúsið. Hljómsveitin blek og byttur leikur fyrir dansi, Aldurstakmark er 45 ár, en yngri eru velkomnir í fylgd með fullorðnum.
Norðurport, sem er lifandi markaður, verður með fjölbreyttan markað fyrr um daginn og hefst hann klukkan 13:00 og stendur til 17:00.
Í tilkynningu frá nefndiðinni segir að allir þeir sem komið hafa á Hippaball á Ketilási mæli með því, vegna tónlistarinnar sem er frá hippatímanum og vegna þess sérstaka friðar- og gleðianda sem þar ríkir. Um sé að ræða flottasta ball ársins í kvöldsólinni í Fljótunum fögru.