Árni, Atli og Yaya voru á Old Trafford í kvöld
16 liða úrslitin í Meistaradeildinni í knattspyrnu kláruðust í kvöld og þó ekki hafi neinir leikmenn á áhrifasvæði Feykis farið mikinn á völlum Evrópu voru þó tveir Tindastólsmenn sem vöktu athygli á Twitter. Bræðurnir Árni og Atli Arnarsynir voru nefnilega gripnir glóðvolgir við að pósa með hinum magnaða knatttækni, Yaya Toure.
Kapparnir þrír voru meðal áhorfenda á leik Manchester United og Olympiacos á Old Trafford. Fótbolti.net segir frá því að TS Bible hafi birt mynd af Yaya ásamt tveimur stuðningsmönnum Manchester United.
Árni og Atli, synir Ödda Ragnars og Möggu, eru sem kunnugt er leikmenn Tindastóls í 1. deildinni á Íslandi en Yaya Toure hefur getið sér gott orð sem leikmaður Manchester City og áður Barcelona.
Það má geta þess að Manchester United sigraði í leiknum í kvöld en Robin Van Persie gerði öll þrjú mörkin sem til þurfti svo Júnæted-menn kæmust í pottinn fyrir átta liða úrslitin. Dýllararnir hafa því vafalaust verið ánægðir með kvöldið.