Stólarnir áfram í VÍS bikarnum eftir sigur í Hafnarfirði
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
20.10.2026
kl. 09.44
Ríkisapparatið sýndi frá VÍS bikarnum í gærkvöldi en það fór nú kannski að mestu fram hjá landsmönnum. Stólarnir reimuðu á sig körfuboltaskóna á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem þeir mættu 1. deildar liði Hauka. Úr varð hressilegur leikur þar sem heimamenn héldu í við gesti sína alveg fram í fjórða leikhluta en þá skildu leiðir. Lokatölur 80-103 og Stólarnirþví komnir í pottinn fyrir 16 liða úrslitin.
