Árshátíð Léttfeta
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
04.03.2014
kl. 13.50
Árshátíð hestamannafélagsins Léttfeta í Skagafirði verður haldin í hátíðarsal félagsins í Tjarnabæ föstudaginn 14. mars og hefst hún kl 20:00. Á dagskrá er matur, skemmtiatriði og gleði og söngur fram eftir nóttu, eins og segir í tilkynningu frá skemmtinefnd félagsins.
Skráningar þurfa að berast Steinunni (í síma 899-2003) eða Hafdísi (í síma 849-1753) fyrir miðvikudaginn 12. mars. Í tilkynningunni eru félagsmenn og gestir hvattir til að mæta og eiga saman góða kvöldstund.