Árshátíð unglingastigs Árskóla
Árshátíðarsýningar unglingastigs Árskóla verða í Bifröst á miðvikudag og fimmtudag. Flutt verða frumsamin leikrit af nemendum 8. og 9. bekkja. Hefjast sýningar kl 17:00 og 20:00 báða dagana.
8. bekkur mun færa leikhúsgestum sannleikann um hvernig það er að vera 13 ára. Stelpur og strákar eru kannski ekki alveg eins, eða hvað? 9. bekkur fjallar í sínu leikriti um það sem er á skjánum. Uppáhaldssjónvarpsþættirnir þínir og fyndnustu auglýsingarnar í leikgerð þeirra.
Miðapantanir eru í síma 453-5216 frá kl 14:00-20:00 báða dagana og er miðaverð 1500 kr. fyrir fullorðna, 1000 kr. fyrir grunnskólanemendur en 500 kr. fyrir börn á leikskólaaldri.
Ágóðinn rennur í ferðasjóð 10. bekkinga. „Við lofum þér gleði og gríni, hver veit nema þú hlægir upphátt?“ segir í tilkynningu frá krökkunum.