Árskóli settur í gær

Skólasetning Árskóla á Sauðárkróki fór fram í gær í breyttu húsnæði en framkvæmdir hafa staðið yfir frá því í fyrrasumar þar sem skólinn er nú að fara undir eitt þak. Framkvæmdir eru nú á lokametrunum og hefst kennsla nk. þriðjudag hjá yngstu börnunum en eitthvað fyrr hjá öðrum.

-Krakkarnir voru ekki laus við spenninginn og voru yfir sig hrifin af nýja kastalanum sem tekur 75 börn, hvorki meira né minna, segir Berglind Þorsteinsdóttir sem fór á setninguna og tók nokkrar myndir og sendi Feyki.

.

Fleiri fréttir