Ásdís Aþena og Rannveig Erla sigurvegarar í Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra

Sigurvegarar í yngri flokki Söngvararkeppni Grunnskóla Húnaþings vestra. Ljósm./FB-síða Grunnsk. Húnaþings vestra.
Sigurvegarar í yngri flokki Söngvararkeppni Grunnskóla Húnaþings vestra. Ljósm./FB-síða Grunnsk. Húnaþings vestra.

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra haldin síðastliðinn laugardag, þann 16. janúar. Samkvæmt Facebook-síðu Grunnskóla Húnaþings vestra var flott frammistaða hjá öllum keppendum. 

Í yngri flokki sigraði Ásdís Aþena Magnúsdóttir, Jóhann Smári Reynisson lenti í öðru sæti og í þriðja sæti voru þær Ásdís Björg Ragnarsdóttir og Arnheiður Diljá Benediktsdóttir.

Í eldri flokki sigraði Rannveig Erla Magnúsdóttir og Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir var í öðru sæti.

Myndir frá kvöldinu má skoða á Facebook-síðunni. 

Í eldri flokki Sigraði Rannveig Erla Magnúsdóttir og Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir

 

Fleiri fréttir