Ásgeir Bragi, Ouse, gerir það gott í músíkinni

Fyrir um ári síðan sagði Feykir frá ungum tónlistarmanni á Sauðárkróki sem væri að gera góða hluti á netinu, með flutningi laga sinna ekki síst á YouTube rás sinni Ouse. Vinsældir hans hafa aukist svo um munar og lögin hans spiluð svo oft að talið er í miljónum í heildina. Þessi ungi snillingur heitir Ásgeir Bragi Ægisson, Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar og Guðbjargar Bjarnadóttur.

Útvarp 101 vakti athygli á vinsældum Ásgeirs Braga í gær og var tekinn í viðtal hjá Loga Pedro útvarpsmanni sem segir að Ouse sé með vinsælli tónlistarmönnum á Íslandi í dag en Ouse er listamannsnafnið hans. Þar kemur fram að lag Ásgeirs Wild sé með um 570.000 spilanir á Spotify í þessum mánuði og í heild nálgast hann 10 milljón spilanir á streymisveitum en eins og nærri má geta er nánast öll hlustunin erlendis frá.

HÉR er hægt að nálgast umfjöllun Útvarps 101.

Tengd frétt: Býr til músík í bílskúrnum - Ásgeir Bragi eða Ouse

 

Fleiri fréttir